
Bíltæknibrautir
Þessi vefsíða er birt með fyrirvara um breytingar þar sem námskráin er enn í vinnslu.
Í bíliðnum geta nemendur valið um þrjár brautir: Bifvélavirkjun, bifreiðasmíði og bílamálun. Að loknu námi og starfsþjálfun taka nemendur sveinspróf í viðkomandi iðngrein og hafa að því loknu full réttindi til starfa í greininni. Námið er á þriðja hæfniþrepi.
Mögulegt er að ljúka námi á öllum iðn- og starfsnámsbrautum með stúdentsprófi. Er það sett upp við hæfi hvers og eins í samráði við náms- og starfsráðgjafa skólans og sviðsstjóra. Stúdentspróf er að lágmarki 200 einingar og lýkur á þriðja hæfniþrepi.
Óski nemandi af bíltæknibraut eftir því að stunda nám í íþróttaakademíu samhliða sinni braut, er sótt um það í samráði við sviðsstjóra iðn- og starfsnáms og verkefnisstjóra íþróttaakademíu. Einingar eru að mestu viðbót við einingafjölda viðkomandi brautar. Hins vegar geta þær nýst í stað íþróttaeininga, í frjálst val eða sem valeiningar í viðbótarnámi til stúdentsprófs eftir iðn- og starfsnám.
Athugið að lotukerfi iðnnáms skiptist í gular lotur og grænar lotur og raðast þær ýmist fyrir eða eftir hádegi. Á myndinni hér fyrir neðan er hægt að sjá hvernig þær raðast.
Græn lotutafla bíltæknibrauta haustönn 2025
Gul lotutafla bíltæknibrauta haustönn 2025
Nánari upplýsingar um bíltæknibrautir veitir Ingibjörg Guðmundsdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms.
Uppfært: 12/08/2025