
Bifreiðasmíði
Í bíliðngreinum blandast nútíma tölvu- og hátækni saman við hefðbundið handverk. Fagmenn í greinunum vinna fjölbreytt störf m.a. við viðgerðir, viðhald og nýsmíði bifreiða og vinnuvéla af öllu tagi.
Til að geta hafið nám í sérgreinum á bíltæknibrautum (bifreiðasmíði, bílamálun eða bifvélavirkjun) þurfa nemendur að ljúka grunnnámi. Gert er ráð fyrir að grunnnáminu megi ljúka á tveimur önnum.
Bifreiðasmiður annast réttingar, viðgerðir og mælingar á burðarvirki og yfirbyggingu hvers kyns ökutækja. Bifreiðasmiður hefur sérhæfða þekkingu til að ástandsmeta og gera kostaðaráætlun á ökutækjum og eftirvögnum eftir tjón. Vinnustaðir þeirra eru réttingar-, málningar- og bifreiðaverkstæði. Náminu er einnig ætlað að veita undirbúning undir þátttöku í íslensku samfélagi og frekara nám, sérstaklega á sviði verk- og tæknigreina.
Bifreiðasmiður er lögverndað starfsheiti og bifreiðasmíði lögvernduð iðngrein.
Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (153 einingum) á tveimur og hálfu námsári. Að þeim tíma loknum tekur við vinnustaðanám sem metið er til 90 eininga.
Nemendur geta útskrifast
- að loknu iðnnámi,
- að loknu iðnnámi og viðbótarnámi til stúdentsprófs – iðnnám,
- að loknum öllum fagáföngum (grunnnámi og sérgreinum) í skóla og viðbótarnámi til stúdentsprófs – iðnnám.
Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs.
Grunnnám
Nemendur sem ekki ná A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn í íslensku, ensku og stærðfræði þurfa að taka undirbúningsáfanga í þeim fögum, ÍSL1A05, ENS1A05 og STÆ1A05.
Sérgreinar
*Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.
Vinnustaðanám
Uppfært: 21/10/2026
