
Bílamálun
Í bíliðngreinum blandast nútíma tölvu- og hátækni saman við hefðbundið handverk. Fagmenn í greinunum vinna fjölbreytt störf m.a. við viðgerðir, viðhald og nýsmíði bifreiða og vinnuvéla af öllu tagi.
Til að geta hafið nám í sérgreinum á bíltæknibrautum (bifreiðasmíði, bílamálun eða bifvélavirkjun) þurfa nemendur að ljúka grunnnámi. Gert er ráð fyrir að grunnnáminu megi ljúka á tveimur önnum.
Bílamálari annast undirbúnings hvers kyns ökutækja s.s. fólksbifreiða, vörubifreiða, vinnuvéla fyrir sprautun. Bílamálari sprautar ökutæki samkvæmt fyrirmælum framleiðanda ökutækja og framleiðanda málningar- og fylliefna auk þess að fylgjast með nýjustu tækni í bílamálun. Bílamálari hannar uppdrátt og teiknar merkingar á ökutæki og býr einnig yfir sérþekkingu á efnisfræði og litafræði. Nám í bílamálun veitir nemendum undirbúning undir sérhæfð störf við viðgerðir og viðhald bifreiða. Náminu er einnig ætlað að veita undirbúning undir þátttöku í íslensku samfélagi og frekara nám, sérstaklega á sviði verk- og tæknigreina.
Bílamálari er lögverndað starfsheiti og bílamálun lögvernduð iðngrein.
Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (130 einingum) á tveimur og hálfu námsári. Að þeim tíma loknum tekur við starfþjálfun á vinnumarkaði sem metin er til 45 eininga.
Nemendur geta útskrifast
- að loknu starfsnámi,
- að loknu starfsnámi og stúdentsprófi,
- að loknum öllum fagáföngum (grunnnámi og sérgreinum) í skóla og viðbótaráföngum til stúdentsprófs.
Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs.
Grunnnám
Nemendur sem ekki ná A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn í íslensku og ensku þurfa að taka undirbúningsáfanga í þeim fögum, ÍSL1A05 og ENS1A05.
Nemendur sem ekki ná A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn í stærðfræði þurfa að taka undirbúningsáfanga, STÆ1A05.
Sérgreinar
Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.
Vinnustaðanám
Uppfært: 01/10/2026
