Líf í borgarholtsskóla

Bifvélavirkjun

Í bíliðngreinum blandast nútíma tölvu- og hátækni saman við hefðbundið handverk. Fagmenn í greinunum vinna fjölbreytt störf m.a. við viðgerðir, viðhald og nýsmíði bifreiða og vinnuvéla af öllu tagi.

Til að geta hafið nám í sérgreinum á bíltæknibrautum (bifreiðasmíði, bílamálun eða bifvélavirkjun) þurfa nemendur að ljúka grunnnámi. Gert er ráð fyrir að grunnnáminu megi ljúka á tveimur önnum.

Bifvélavirki annast skoðun, viðhald, viðgerðir og bilanaleit á hvers kyns ökutækjum s.s. fólksbifreiðum, vörubifreiðum, vinnuvélum. Bifvélavirki hefur sérhæfða þekkingu á virkni hverskyns vél- og rafbúnaði ökutækja auk þess sem hann framkvæmir bilanaleit og viðgerðir á ökutækjum. Bifvélavirki vinnur aðallega á bifreiðaverkstæðum, skoðunarstöðvum, véla og tækjaverkstæðum eða skyldum vinnustöðum. Náminu er einnig ætlað að veita undirbúning undir þátttöku í íslensku samfélagi og frekara nám, sérstaklega á sviði verk- og tæknigreina.

Bifvélavirki er lögverndað starfsheiti og bifvélavirkjun lögvernduð iðngrein.

Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (158 einingum) á þremur námsárum. Að þeim tíma loknum tekur við vinnustaðanám sem metið er til 90 eininga.

Nemendur geta útskrifast

Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs.

Grunnnám

*Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.

Vinnustaðanám

Uppfært: 21/10/2026