Félagsvirkni- og uppeldissvið
Stúdent og starfsréttindi
Nám í félagsvirkni- og uppeldisgreinum skiptist á tvær námsbrautir: Nám fyrir félagsliða og leikskólaliða. Nám fyrir félagsliða er sex anna nám og lýkur á þriðja hæfniþrepi en nám fyrir leikskólaliða er fimm anna nám og lýkur á öðru hæfniþrepi.
Mögulegt er að ljúka námi á öllum iðn- og starfsnámsbrautum með stúdentsprófi. Er það sett upp við hæfi hvers og eins í samráði við náms- og starfsráðgjafa skólans og sviðsstjóra. Stúdentspróf er að lágmarki 200 einingar og lýkur á þriðja hæfniþrepi.
Óski nemandi af félagsvirkni- og uppeldissviði eftir því að stunda nám á afreksíþróttasviði samhliða sinni braut, er sótt um það í samráði við sviðsstjóra iðn- og starfsnáms og verkefnisstjóra afrekssviðs. Einingar eru að mestu viðbót við einingafjölda viðkomandi brautar. Hins vegar geta þær nýst í stað íþróttaeininga, í frjálst val eða sem valeiningar í viðbótarnámi til stúdentsprófs eftir iðn- og starfsnám.
Frá haustönn 2024 er nám á félagsvirkni- og uppeldissviði einungis hægt að stunda í dreifnámi.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um félagsvirkni- og uppeldissvið í Borgarholtsskóla veitir Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms.
Uppfært: 27/08/2024