
Lokað fyrir skráningu
Lokað hefur verið fyrir rafræna skráningu á námskeið á skóhlífadögum.
Ef þú ert ekki enn búin(n) að skrá þig getur þú komið við á skrifstofu skólans og athugað með laus pláss.
Leiðbeiningar
Hver nemandi velur þrjú námskeið – eitt á miðvikudag kl. 9.00, eitt á miðvikudag kl. 13.00 og eitt á fimmtudag kl. 9.00. Athugið þó að tímasetningar geta verið aðeins mismunandi.
Gefa þarf upp kennitölu og er það gert til að koma í veg fyrir að nemandi skrái sig tvisvar á sama námskeið.
Að skráningu lokinni sendir kerfið þér tölvupóst með upplýsingum um þau námskeið sem þú hefur skráð þig á og því er mikilvægt að að netfang þitt sé rétt skráð.
Athugið sum námskeið kosta. Þau sem velja námskeið sem borga þarf fyrir þurfa að mæta með pening á staðinn. Sums staðar er tekið við kortum en alls ekki alls staðar.


