Líf í borgarholtsskóla

Íþróttaakademía

Borgarholtsskóli býður upp á íþróttaakademíu fyrir alla nemendur sem stunda skipulagðar keppnisíþróttir undir handleiðslu þjálfara. Námið er fimm annir og að mestu verklegt. Boðið er upp á sérstakar tækniæfingar í völdum íþróttagreinum þar sem fjöldi og aðstæður leyfa. Nemendur úr öðrum íþróttagreinum fá líkamlegar styrk-, þol- og liðleikaæfingar ásamt sérstaklega smíðuðum verkefnum og utanumhald. Kennsla fer öll fram innan skóladagsins við frábærar aðstæður í Egilshöll.

Á íþróttaakademíunni er einnig farið í grunnstoðir árangurs í íþróttum þar sem nemendur fá kennslu í þjálfun hugarfarslegra þátta ásamt fræðslu um líkamlegar mælingar, næringu og áherslur í styrktarþjálfun. Að auki vinna nemendur margvísleg hagnýt verkefni sem tengjast íþróttinni sem þeir stunda.

Markmið íþróttaakademíu er að bjóða upp á nám sem styður við þarfir íþróttafólks á framhaldsskólastigi.  Í því felst æfingar á skólatíma á vegum ÍAK, sveigjanleiki til ástundunar vegna keppni og æfinga með félagsliði og landsliðum,  faglegur stuðningur og þjónusta við nemendur. Þjálfunin er einstaklingsmiðuð og unnin eftir fremsta megni í samvinnu við þjálfara hjá félögum til að nemendur fái sem bestu þjálfun með tilliti til allra þátta.

Sjúkraþjálfun

Á æfingum ÍAK í Egilshöll er sjúkraþjálfari á staðnum. Íþróttaakademía Borgarholtsskóla er í samvinnu við Hæfi endurhæfingarstöð ehf. sem er staðsett í Egilshöll.

  • Sjúkraþjálfari á vegum Hæfi endurhæfingarstöðvar ehf. sinnir nemendum Íþróttaakademíu Borgarholtsskóla sem eiga við meiðsli að stríða. Nemendur fá viðtal og léttskoðun hjá sjúkraþjálfara sem í kjölfarið leiðbeinir þeim um framhald meðferðar/þjálfunar.
  • Sjúkraþjálfunin Hæfi ehf. leitast einnig við að útvega nemendum Íþróttaakademíu Borgarholtsskóla tíma í sjúkraþjálfun samdægurs eða við fyrsta mögulega tækifæri. Einnig geta nemendur pantað tíma á hefðbundnum vinnutíma í gegnum afgreiðsluna.

Íþróttasálfræði

Nemendum ÍAK stendur til boða að fá viðtal hjá íþróttasálfræðingi, til dæmis varðandi persónulega markmiðssetningu og aðstoð við viðbrögð vegna alvarlegra meiðsla.

World Class Egilshöll

Nemendur á íþróttaakademíu fá aðgang að World Class í Egilshöll á skólatíma. Nánar tiltekið frá klukkan 7:50–17:30 virka daga, en til klukkan 16:00 á föstudögum.

Instagram síða íþróttaakademíu

Efnisgjald

Efnisgjald fyrir íþróttaakademíu er innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld og er það kr. 40.000 fyrir önn. Innifalið í efnisgjaldinu er:

  • Fatnaður: Á hverju ári fá allir nemendur merktan fatnað og nýnemar fá íþróttatösku.
  • Ferðir og félagslegt uppbrot: Á hverju hausti fara nemendur á íþróttaakademíu í ferðir til að kynnast betur og skemmta sér saman. Einnig eru minni uppákomur yfir veturinn.
  • Fræðsla: Kynningar og fyrirlestrar tengdir þjálfun og lífstíl.
  • Meðferð við meiðslum hjá sjúkraþjálfara og íþróttasálfræðingi.

Umsóknir

Umsókn um skóla og Íþróttaakademíu

Nemendur sækja um skólavist á bóknámsbraut rafrænt í gegnum Menntagátt https://island.is/umsokn-um-framhaldsskola.
Einnig þarf að sækja sérstaklega um á umsóknareyðublaði fyrir íþróttaakademíu fyrir auglýstan frest hverju sinni Íþróttaakademía – umsókn um nám

Óski nemandi af öðrum brautum en bóknámsbrautum eftir því að stunda nám á Íþróttaakademíu samhliða sinni braut, er sótt um það í samráði við viðkomandi sviðsstjóra og deildarstjóra íþróttamála í Borgarholtsskóla.

Leyfisbeiðni

Nemendur á Íþróttaakademíu geta sótt um leyfi frá skólasókn vegna æfinga, leikja, keppnis- og æfingaferða eða landsliðsverkefna að uppfylltum skilyrðum (sjá Viðmið og reglur ). Fylla þarf tímanlega út rafræna umsókn Íþróttaakademía – umsókn um leyfi frá skólasókn

Tekið skal fram að ef nemendur eru með slaka skólasókn þá er þeim hafnað um leyfi.

Landsliðsstyrkur

Nemendur sem hafa verið valdir til þátttöku í landsliðsverkefnum erlendis á vegum sérsambanda ÍSÍ eða sambærilegra erlendra sérsambanda geta sótt um styrk hér: Íþróttaakademía – umsókn um landsliðsstyrk.

Landsliðsstyrkur Íþróttaakademíu Borgarholtsskóla er veittur tvisvar á ári þeim nemendum sem uppfylla skilyrði (sjá Landsliðsstyrkur).

Allar nánari upplýsingar veitir Inga Lára Þórisdóttir, deildarstjóri íþróttamála inga.thorisdottir@borgo.is

Eyðublöð sem tengjast Íþróttaakademíu.

Uppfært: 13/04/2026

Sjá fréttir um Íþróttaakademía