Líf í borgarholtsskóla

Landsliðsstyrkur

Nemendur sem hafa verið valdir til þátttöku í landsliðsverkefnum erlendis á vegum sérsambanda ÍSÍ eða sambærilegra erlendra sérsambanda geta sótt um styrk.

Reglur íþróttaakademíu um veitingu landsliðsstyrks.

Landsliðsstyrkur íþróttaakademíu Borgarholtsskóla er veittur tvisvar á ári þeim nemendum sem uppfylla neðangreind skilyrði:

Nemandi hefur áunnið sér styrk með því að hafa verið valin/-n/-ið til þátttöku í landsliðsverkefnum erlendis á vegum sérsambanda ÍSÍ eða sambærilegra erlendra sérsambanda. Styrkþegar skulu stunda nám við Borgarholtsskóla og vera skráðir í íþróttaakademíuáfanga á þeirri önn sem landsliðsverkefnið fer fram. Skilyrði til að hljóta styrk er að nemandi hafi uppfyllt samning sinn við íþróttaakademíuna að fullu.

Styrktímabil

  • Vegna vorannar – afhending styrkja fer fram í maí.
  • Vegna haustannar – afhending styrkja fer fram í janúar.

Gögn sem skila þarf

  • Staðfestingu á vali í landsliðshóp.
  • Rafrænni umsókn sem er að finna á heimasíðu skólans.

Einungis er veittur einn styrkur á hvern nemanda á önn, þótt nemandi hafi tekið þátt í fleiri verkefnum sem uppfylla ofangreind skilyrði.

Upphæð styrks getur numið allt að kr. 25.000,-.

Samanlögð hámarksupphæð styrkja á hverri önn er kr. 500.000,-.

Uppfært: 13/04/2026