
Félagsvirkni- og uppeldissvið
Félagsvirkni- og uppeldissvið
Nám í félagsvirkni- og uppeldisgreinum skiptist á fjórar námsbrautir: Nám fyrir félagsliða, leikskólaliða, og stuðningsfulltrúa. Nám fyrir félagsliða lýkur á þriðja hæfniþrepi en nám fyrir leikskólaliða og stuðningsfulltrúa lýkur á öðru hæfniþrepi.
Mögulegt er að ljúka námi á öllum iðn- og starfsnámsbrautum með stúdentsprófi. Er það sett upp við hæfi hvers og eins í samráði við náms- og starfsráðgjafa skólans og sviðsstjóra. Stúdentspróf er að lágmarki 200 einingar og lýkur á þriðja hæfniþrepi.
Dreifnám
Dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði er hugsað sem nám sem hægt er að stunda samhliða vinnu. Það fer að mestu fram í gegnum tölvu en á hverri önn eru kenndar 3 staðlotur í skólanum um helgi. Námið byggir á þrenns konar vinnuaðferðum: verkefnavinnu í gegnum netið, staðbundnum lotum og netumræðum (ein klukkustund á viku í hverjum áfanga eftir klukkan 16:35).
Dreifnámið miðast við að einstaklingur hafi starfsreynslu á viðeigandi sviði og hafi við námslok a.m.k. 3ja ára starfsreynslu. Eins eru framhaldskólaeiningar metnar ef áfangar eru þeir sömu eða sambærilegir við þá sem kenndir eru á brautunum.
Þetta fyrirkomulag gerir nemendum kleift að uppfylla fjölbreytt markmið námsins auk þess sem þeir hljóta góða hæfni í upplýsingatækni. Leitast er við að verkefni tengist sem mest starfsumhverfi nemenda og samtímanum.
Námsmat mun að mestu leyti felast í símati á virkni og verkefnum nemenda.
Námið er styrkhæft hjá mörgum stéttarfélögum. Nemendur sem greiða sjálfir fá sendan greiðsluseðil í heimabanka fyrir innritunargjöldum, sem eru óafturkræf. Einingagjöld er innheimt eftir að nám er hafið.
Staðlotur vorönn 2026
9. og 10. janúar
6. og 7. mars
8. og 9. maí
Stundatafla fyrir staðlotur og umræðutíma haustönn 2025
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um dreifnám í Borgarholtsskóla veitir Ingibjörg Guðmundsdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms.
Uppfært: 12/02/2026
