
Stuðningsfulltrúar í skólum
Nám fyrir stuðningsfulltrúa í skólum styrkir fagvitund og áhersla er lögð á uppeldisfræði, fötlunarfræði, sálfræði, samskipti og listsköpun. Stuðningsfulltrúar starfa við hlið annars fagfólks að umönnun, uppeldi og menntun barna og ungmenna með sérþarfir.
Þetta nám er fyrir fólk með starfsreynslu á þessu sviði og er kennt í dreifnámi.
Námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa er samtals 101 eining.
Nemendur geta útskrifast að loknu starfsnámi eða að loknu starfsnámi og stúdentsprófi, sjá Viðbótarnám til stúdentsprófs – starfsnám.
Uppfært: 21/10/2026
