22/11/2023 | Ritstjórn
Pop-up markaður
![Pop-up markaður](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/400772948_3597095667235458_6972560622751196705_n2.jpg)
Pop-up markaður
Nemendur í skapandi hugmyndavinnu (SKH3A05) héldu Pop-up markað í matsal skólans á þriðjudaginn. Pop-up markaðurinn er hluti af áfanganum en markmið áfangans er að efla sköpunarkraft, frumkvæði, nýsköpun og virkja áræðni nemenda til að finna nýjar lausnir og/eða skapa gæði sem máli skipta. Í áfanganum er unnið út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Nemendur voru með fjölbreyttar vörur og þjónustu á boðstólnum, seldu til dæmis notaðan fatnað, bjuggu til skargripi, seldu bakkelsi og teiknuðu portrett myndir af fólki sem þess óskaði. Allur ágóði markaðarins rennur til Unicef hjálparstarfs í Palestínu. Til að gera þetta meira spennandi voru nemendur búnir að fá starfsfólk með sér í lið. Starfsfólk fékk þá yfir sig vatnsfötu, rjóma í andlitið eða það var krotað á það, allt eftir því hvað safnaðist mikið.
Myndagallerí
![Þessar seldu skartgripi sem þær bjuggu til](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/20231121_132353-scaled.jpg)
Þessar seldu skartgripi sem þær bjuggu til
![Þessar stúlkur prentuðu eigin hönnun á peysur og seldu](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/20231121_132344-scaled.jpg)
Þessar stúlkur prentuðu eigin hönnun á peysur og seldu
![Bakkelsið rann út eins og heitar lummur](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/20231121_132221-scaled.jpg)
Bakkelsið rann út eins og heitar lummur
![Þegar safnast höfðu 30 þúsund krónur fengu nemendur að teikna á Nökkva, kennara](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/20231121_132153-scaled.jpg)
Þegar safnast höfðu 30 þúsund krónur fengu nemendur að teikna á Nökkva, kennara
![Bás með notuðum fatnaði](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/401102617_864498205135587_3344897497418919951_n.jpg)
Bás með notuðum fatnaði
![Hægt var að fá teiknaða portrett mynd af sér](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/400772952_324561797005447_4765136549678447620_n.jpg)
Hægt var að fá teiknaða portrett mynd af sér
![Hanna Björg fékk rjóma í andlitið](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/20231121_132440-scaled.jpg)
Hanna Björg fékk rjóma í andlitið