Líf í borgarholtsskóla

05/09/2023 | Ritstjórn

Listnámsnemendur á sýningu í Hafnarhúsi

Nemendur á sýningunni

Nemendur á sýningunni

Nemendur á fyrsta ári á listnámsbraut fóru 31. ágúst síðastliðinn á sýninguna Kviksjá í Listasafni Reykjavíkur. Á sýningunni Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld  gefur að líta úrval af þeim verkum sem Listasafn Reykjavíkur hefur eignast síðustu tvo áratugi. Verkin gefa innsýn inn í þá breidd og þær áherslur sem hafa verið að mótast og gerjast í íslensku listalífi frá aldamótum 2000 til dagsins í dag.

Nemendur fengu leiðsögn um sýninguna og skemmtu sér vel við að skoða verkin.