01/06/2026 | Ritstjórn
Landsliðsstyrkur afhentur

Gabriel, Haukur og Jónas ásamt Ingu Láru, sviðsstjóra íþróttaakademíu og Ástu Laufeyju, skólameistara við afhendingu styrksins
Í vikunni voru landsliðsstyrkir íþróttaakedemíu Borgarholtsskóla afhentir. Fjórir nemendur voru styrktir að þessu sinni en það voru þau Haukur Freyr Karvelsson (íshokkí), Gabriel Egilsson (íshokkí), Jónas Björn Guðmundsson (júdó) og Lilja Katrín Gunnarsdóttir (fimleikar). Upphæð hvers styrks er 25.000 krónur og er vegna landsliðsverkefna í vetur.

