Innritun á vorönn 2024
Byrjar: 01/11/2023
Endar: 30/11/2023
Innritun á vorönn 2024 stendur yfir frá 1. – 30. nóvember.
Spurningar og svör um námið og Borgó.
Dagskóli
Innritun fer fram á vef Menntamálastofnunar.
Nám í boði
- Afreksíþróttasvið *
- Bíltæknibrautir, bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun
- Bóknám, félags- og hugvísindabraut, náttúrufræðibraut, viðskipta- og frumkvöðlabraut
- Framhaldsskólabraut
- Listnám – grafísk hönnun, kvikmyndagerð, leiklist
- Málm- og véltæknibrautir, blikksmíði, rennismíði, pípulagnir, stálsmíði, vélvirkjun
*Nemendur, sem óska eftir að stunda nám á afreksíþróttasviði, sækja um skólavist rafrænt eins og aðrir. Því til viðbótar þurfa þeir að sækja um á afreksíþróttasviði á sérstöku eyðublaði .
Nám með vinnu (dreifnám)
Boðið er upp á dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði og málm- og véltæknibrautum. Það nám er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í dreifnámi að stunda vinnu.
Félagsvirkni- og uppeldissvið
Búið er að opna fyrir umsóknir um nám á félagsvirkni- og uppeldissviði fyrir vorönn 2024.
Sótt er um námið á rafrænu umsóknareyðublaði .
Nánari upplýsingar gefur Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri, marin.jonasdottir@borgo.is
Málm- og véltæknisvið
Innritun fer fram í gegnum umsóknarvef Innu .
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Gylfason, deildarstjóri, haraldur.gylfason@borgo.is