Innritun á haustönn 2023
Byrjar: 20/03/2023
Endar: 08/06/2023
Spurningar og svör um skólann og námið
Dagskóli
Innritun nýnema úr 10. bekk á haustönn 2023 fer fram 20. mars -8. júní 2023.
Innritun eldri nemenda fer fram 27. apríl – 1. júní 2023
Sótt er um á vef Menntamálastofnunar.
Nám í boði
- Afreksíþróttasvið *
- Bíltæknibrautir, bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun
- Bóknám, félags- og hugvísindabraut, náttúrufræðibraut, viðskipta- og frumkvöðlabraut
- Félagsvirkni- og uppeldissvið, félagsliðar, leikskólaliðar
- Framhaldsskólabraut
- Listnám – grafísk hönnun, kvikmyndagerð, leiklist
- Málm- og véltæknibrautir, blikksmíði, rennismíði, stálsmíði, vélvirkjun, pípulagnir
*Nemendur, sem óska eftir að stunda nám á afreksíþróttasviði, sækja um skólavist rafrænt eins og aðrir. Því til viðbótar þurfa þeir að sækja um á afreksíþróttasviði á sérstöku eyðublaði sem þarf að berast í síðasta lagi 8. júní 2023.
Inntökuskilyrði
Innritunargjöld
Nám með vinnu (dreifnám)
Boðið er upp á dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði og málm- og véltæknibrautum. Það nám er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í dreifnámi að stunda vinnu.
Félagsvirkni- og uppeldissvið
Búið er að opna fyrir umsóknir um nám á félagsvirkni- og uppeldissviði fyrir haustönn 2023.
Sótt eru námið á rafrænu umsóknareyðublaði.
Umsóknarfrestur er til 8. júní 2023
Nánari upplýsingar gefur Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri, marin.jonasdottir@borgo.is
Málm- og véltæknisvið
Innritun fer fram í gegnum umsóknarvef Innu.
Stundatafla í dreifnámi málms á haustönn 2023 mun birtast síðar.
Umsóknarfrestur er til 8. júní 2023
Nánari upplýsingar gefur Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri, marin.jonasdottir@borgo.is