Líf í borgarholtsskóla

Stálsmíði

Markmið náms í stálsmíði er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem stálsmiðir inna af hendi, þ.e. nýsmíði og viðhald málm- og stálmannvirkja úr mismunandi gerðum málmplatna, stangarefnis og rörum. Stálsmiður er lögverndað starfsheiti og stálsmíði löggild iðngrein.

Til að geta hafið nám í sérgreinum á málm- og véltæknibrautum (rennismíði, stálsmíði eða vélvirkjun) þurfa nemendur að ljúka grunnnámi. Gert er ráð fyrir að grunnnáminu megi ljúka á tveimur önnum.

Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (160 einingum) á þremur námsárum. Að þeim tíma loknum tekur við vinnustaðanám sem metið er til 80 eininga.

Að þessu námi loknu geta nemendur sótt um og þreytt sveinspróf í stálsmíði sem veitir starfsréttindi í faginu. Sveinsprófið veitir rétt til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Nemendur geta útskrifast

Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs.

Grunnnám

*Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.

Sérgreinar

Uppfært: 21/10/2026