Líf í borgarholtsskóla

Pípulagnir

Markmið náms í pípulögnum er að gera nemendum kleift að vinna sjálfstætt að verkefnum sem iðngreininni tilheyra og leiðbeina öðrum. Mikilvægur þáttur í náminu er að efla sjálfsskilning, lýðræðislega hugsun og siðvitund nemenda þannig að þau séu undir það búin að sinna samfélagslegum skyldum sínum.

Eftir námið er gert ráð fyrir að viðkomandi kunni skil á helstu eiginleikum og verkan efna og tækja og geti valið þau eftir verkefnum. Viðkomandi getur lagt vatnshitakerfi og neysluvatnskerfi innanhúss og ýmis sérhæfð lagnakerfi, lagt frárennsliskerfi innanhúss og í jörðu, sett upp og tengt hreinlætis- og heimilistæki og sett upp og stillt búnað í tækjaklefum. Pípari getur annast viðhald og viðgerðir á lagnakerfum og búnaði tengdum þeim. Pípari getur leiðbeint húseigendum um val á efnum í nýbyggingum og við viðhald. Pípulagnir er löggilt iðngrein.

Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (120 einingum) á tveimur námsárum. Að þeim tíma loknum tekur við starfþjálfun á vinnumarkaði sem metin er til 60 eininga.

Að þessu námi loknu geta nemendur sótt um og þreytt sveinspróf í pípulagnir sem veitir starfsréttindi í faginu. Sveinsprófið veitir rétt til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Nemendur geta útskrifast

  •      að loknu starfsnámi,
  •      að loknu starfsnámi og stúdentsprófi,
  •      að loknum öllum fagáföngum (grunnnámi, kjarna og sérgreinum) í skóla og viðbótaráföngum til stúdentsprófs.

Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs.

Grunnnám

Nemendur sem ekki ná A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn í íslensku og ensku þurfa að taka undirbúningsáfanga í þeim fögum, ÍSL1A05 og ENS1A05.

Nemendur sem ekki ná A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn í stærðfræði þurfa að taka undirbúningsáfanga, STÆ1A05.

Sérgreinar

Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.

Starfsþjálfun

Uppfært: 01/10/2026