Líf í borgarholtsskóla

03/01/2024 | Ritstjórn

Upphaf vorannar

Kennsla á vorönn 2024 hefst 5. janúar samkvæmt stundatöflu. Námsgagnalista má finna á Innu.

Töflubreytingar hefjast 4. janúar. Aðrir nemendur en útskriftarefni senda inn beiðnir um töflubreytingar rafrænt í gegnum Innu og verða þær afgreiddar svo fljótt sem auðið verður. Leiðbeiningar um rafrænar töflubreytingar.

Útskriftarefni (þeir nemendur sem eiga um 35 einingar eða minna eftir af sinni braut) eru hvött til að hafa samband við sinn sviðsstjóra, fóstru mætingar og umsjónar eða áfangastjóra til að tryggja að allir nauðsynlegir áfangar til útskriftar séu í töflu.

Fimmtudaginn 4. janúar fara fram tveir zoomfundir fyrir nýnema. Annars vegar fyrir nýnema í dagskóla á bíltæknibraut og málm- og véltæknibrautum og hins vegar nýnema í dreifnámi á félagsvirkni og uppeldssviði.

Fundur eingöngu fyrir nýnema í dreifnámi á félagsvirkni og uppeldissviði klukkan 17:00 – 18:00.

Fundur eingöngu fyrir nýnema í dagskóla á bíltæknibraut  og málm- og véltæknibraut klukkan 18:30 – 19:00.

Hægt er að fylgjast með lífinu í skólanum á instagramsíðum skólans og nemendafélagsins .

Spurningar og svör varðandi skólann.