12/08/2026 | Ritstjórn
Upphaf haustannar 2026

Hressir nemendur hefja nýja önn
Kennsla hefst í dagskóla og kvöldskóla miðvikudaginn 19. ágúst. Stundatöflur verða opnar í INNU frá föstudeginum 14. ágúst og þar má einnig nálgast lista yfir námsgögn. Útskriftarefni þessa skólaárs eru hvött til að fá ráðgjöf þann dag hjá áfangastjóra og sviðsstjórum. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að allir nauðsynlegir áfangar til útskriftar séu í stundatöflu.
Töflubreytingar fyrir alla nemendur aðra en nýnema eru mögulegar frá og með föstudeginum 14. ágúst en úrsögn úr áföngum lýkur þann 31. ágúst. Beiðnir um töflubreytingar eru sendar á INNU og verða þær afgreiddar svo fljótt sem auðið verður. Leiðbeiningar um rafrænar töflubreytingar.
Þriðjudaginn 18. ágúst verður nýnemadagur en þá mæta allir nýnemar fæddir 2010 eða seinna í skólann klukkan níu um morguninn og taka þátt í dagskrá á vegum skólans og nemendafélagsins til klukkan 14:00.
Kynning fyrir foreldra nýnema verður klukkan 16:30 í matsal skólans þriðjudaginn 18. ágúst. Kynningin er fyrst og fremst ætluð foreldrum nýnema sem luku 10. bekk sl. vor.
Fimmtudaginn 20. ágúst verður kynning fyrir nemendur í dreifnámi. Kynningin verður á Teams og hefst klukkan 17:00. Hér er hægt að skrá sig á kynninguna. Kennsla í dreifnámi hefst þann 28. ágúst en fyrsta staðlota annarinnar er 28. og 29. ágúst. Tíma- og staðsetningar er að finna í stundatöflu á INNU.
Hægt er að fylgjast með lífinu í skólanum á instagramsíðum skólans, nemendafélagsins auk vefsíðu NFBHS.

