Líf í borgarholtsskóla

15/08/2023 | Ritstjórn

Upphaf haustannar

Skólahald hefst að nýju eftir sumarleyfi

Skólahald hefst að nýju eftir sumarleyfi

Nú líður að því að skólahald hefjist aftur að nýju eftir sumarleyfi.

Nýnemadagur er 18. ágúst en þá mæta nýnemar í matsal skólans kl. 9:00. Dagskrá verður til kl. 15:00 og fá þau meðal annars kynningu á skólanum og hitta umsjónarkennara sína.

Kennsla á haustönn 2023 hefst mánudaginn 21. ágúst samkvæmt stundatöflu. Stundatöflur verða birtar miðvikudaginn 16. ágúst. Bókalista má einnig finna á Innu. 21. ágúst hefst einnig kennsla í kvöldskóla í málmi en 25. ágúst hefst kennsla í dreifnámi með fyrstu staðlotu annarinnar.

Töflubreytingar fyrir alla aðra en nýnema hefjast 16. ágúst. Aðrir nemendur en útskriftarefni senda inn beiðnir um töflubreytingar rafrænt í gegn um Innu og verða þær afgreiddar svo fljótt sem auðið verður. Leiðbeiningar um rafrænar töflubreytingar.
Nemendur sem hyggja á útskrift á skólaárinu 2023-2024 geta fengið ráðgjöf vegna útskriftar hjá áfangastjóra, fóstru mætinga og umsjónar og sviðstjórum mánudaginn 21. ágúst

Kynningarfundur fyrir dreifnámsnemendur á félagsvirkni- og uppeldissviði verður 16. ágúst kl. 17 á zoom.

Kynning fyrir foreldra nýnema (fædd 2007 eða síðar) verður í matsal skólans kl. 17:00 þann 17. ágúst.

Hægt er að fylgjast með lífinu í skólanum á instagramsíðum skólans og  nemendafélagsins .