20/04/2026 | Ritstjórn
Ungir frumkvöðlar í Borgó

Leikur fyrirtækisins Flatir fletir sló í gegn
Nýsköpunarkeppni framhaldsskólanna, Ungir frumkvöðlar, fór fram um helgina. Nemendur úr sautján framhaldsskólum kynntu vörur sínar í Smáralind og þar á meðal voru níu lið frá Borgarholtsskóla. Verkefni þeirra og fyrirtæki voru einstaklega fjölbreytt og hugmyndarík en þau voru:
Endurlok en þar vinna nemendur með óskilamuni, endurnýta fatnað og umbreyta honum áður en hann er seldur á ný.
Flatir fletir er fyrirtæki utan um útileik sem er hannaður til að hvetja ungmenni til að fara meira út í sumar, sjá frétt á Vísi.
Fyrirtækið Glampi endurnýtir bílavarahluti í einstaka og flotta lampa. Aukavaran er ilmspjald fyrir bíla.
Háin bjó til myndir sem sýna landslag, einkum fjöll, mótað af hæðarlínum þar sem yfirborð jarðar er dregið fram í einföldum og nákvæmum línum. Útkoman eru stílhrein verk sem henta vel á vegg.
Hraustur framleiðir bragðgóðar próteinmuffins sem sameina næringu og ánægju. Þar er hægt að fá aukaefnalausa orku fyrir æfingu.
HARKI býður upp á bragðbættan harðfisk sem hentar öllum en sérstaklega íþróttafólki. Varan kemur í endurlokanlegum poka en hver poki inniheldur rúmlega 84 prósent prótein. Hér má lesa umfjöllun um vöruna.
Hjá fyrirtækinu ParTí er gömlum golfvörum gefið nýtt líf sem fjölbreyttar heimilisvörur sem nýtast við ólík tækifæri.
Mareik hannaði fallegt bretti úr marmara og eik sem má nota bæði sem skurðarbretti og platta. Markmið framleiðslunnar er að draga úr plastnotkun.
Fyrirtækið ÞÖGN hannaði falleg og hljóðdempandi málverk.
Hugmyndir og framleiðsla nemendanna eru einstaklega vel heppnaðar og vöktu áhuga fjölda fólks sem lagði leið sína í Smáralindina um helgina. Uppskeruhátíð keppninnar verður í Arionbanka þann 28. apríl en sigurliðið fær boð á frumkvöðlamessuna Gen-E sem fer fram í borginni Riga í Lettlandi dagana 7. – 10. júlí. næstkomandi.

