24/04/2026 | Ritstjórn
Umhverfismálin útskýrð

Umhverfisnefnd nemenda ásamt Lauru, fyrirlesara, og Hildi Margréti og Ásdísi umhverfisfulltrúum og kennurum
Á dögunum kom góður gestur til okkar, Laura Sólveig Lefort Scheefer, forseti Ungra umhverfissinna. Hún ræddi um starf félagsins en það nær til alls milli himins og hafsbotns. Það voru nemendur í lífsleikni sem drukku í sig fróðleikinn að þessu sinni og gengu vel nestaðir frá borðum. Umhverfisnefnd nemenda stóð fyrir heimsókninni með dyggri aðstoð Hildar Margrétar.
Nefndin er einnig með fatamarkað í skólanum, til að ýta undir endurnotkun og draga úr sóun. Vonandi heldur umhverfisstarf með nemendum áfram að blómstra hjá okkur, í félagslífi þeirra og hjá kennurum í faggreinum.

Laura Sólveig Lefort Scheefer, forseti Ungra umhverfissinna

Að mörgu er að hyggja í umhverfismálum

