Líf í borgarholtsskóla

03/03/2026 | Ritstjórn

Stærðfræðisnillingar á ferð

Tíu efstu nemendur úr 10. bekk

Tíu efstu nemendur úr 10. bekk

Þriðjudaginn 24. febrúar síðastliðinn fylltist skólinn af áhugasömum grunnskólanemendum sem komnir voru til að taka þátt í stærðfræðikeppni grunnskólanna. Framkvæmd keppninnar er í höndum Írisar Elfu Sigurðardóttur, stærðfræðikennara, og naut hún aðstoðar nemenda skólans við yfirferð og fyrirlögn.

154 nemendur úr átta skólum tóku þátt í ár og er það metfjöldi. Skólarnir eru flestir í nágrenninu, Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal en einnig komu nemendur frá Norðlingaholti, Árbæ, Breiðholti og Kópavogi. Keppendur úr áttunda bekk voru 50 talsins, 48 úr níunda bekk og 56 úr tíunda bekk en fjölgunin var mest í síðasta hópnum.

Árangur nemenda var gríðarlega góður og er ljóst að framtíðin í stærðfræðigetu landsmanna er björt. Allir þátttakendur fengu viðurkenningarskjal en þeim sem lentu í tíu efstu sætunum í hverjum bekk var boðið á verðlaunaafhendingu í skólanum síðdegis í dag. Nemendur sem lentu í 4. – 6. sæti í hverjum bekk fengu gjafabréf frá Dominos, þau sem urðu í 3. sæti fengu reiknivél frá Heimilistækjum, annað sætið fékk heyrnartól frá Opnum kerfum og fyrir fyrsta sætið var spjaldtölva frá Ofar í verðlaun. Þessi fyrirtækjum er þakkað kærlega fyrir glæsilegan stuðning við keppnina. Auk verðlauna fá þrír efstu keppendurnir úr 10. bekk ókeypis námsvist í Borgarholtsskóla næstu haustönn.

Þátttakendum og aðstandendum er óskað innilega til hamingju með árangurinn. Vonandi sjáum við flesta þessara nemenda í skólanum von bráðar.