Líf í borgarholtsskóla

11/02/2026 | Ritstjórn

P fyrir Patrek

Stórt, blátt P í minningu Patreks Freys

Stórt, blátt P í minningu Patreks Freys

Síðastliðið fimmtudagskvöld varð alvarlegt bílslys á Miklubraut með þeim hörmulegu afleiðingum að nemandi skólans, Patrekur Freyr Sveinsson, lést, aðeins sautján ára gamall. Í dag heiðruðu nemendur og starfsfólk minningu Patreks með því að mæta í bláum fötum og mynda stórt P á bílastæði skólans.

Nemendafélagið stendur fyrir söfnun fyrir fjölskyldu Patreks og í hádeginu voru seldar bláar vöfflur en blár var eftirlætislitur hans og einkennislitur íshokkíliðsins sem hann lék með. Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á reikning nemendafélagsins: 0346-26-3333, kt. 621096-2149. Hver vaffla kostaði 500 krónur og hægt er að leggja inn andvirði eins margra og hver kýs. Söfnunin stendur fram á föstudag og ágóðinn rennur til fjölskyldu Patreks til að létta undir með henni á þessum erfiðu tímum.