Líf í borgarholtsskóla

01/06/2026 | Ritstjórn

Ný skurðarvél í málminn

Ný skurðarvél flutt í skólann

Ný skurðarvél flutt í skólann

Enn berast skólanum góðar gjafir. Að þessu sinni er það ný skurðarvél sem leysir gamla plasmavél sem hafði þjónað skólanum vel og lengi af hólmi. Gamla vélin var orðin úrelt tæknilega en nýja vélin er leiserskurðarvél sem getur framkvæmt ýmsa skurði sem ekki hefur verið hægt að ná fram til þessa. Vélin er gjöf frá HD og fleiri fyrirtækjum og eru þeim færðar kærar þakkir fyrir rausnarskapinn. Nú geta nemendur og kennarar í málmiðngreinum þróað sig áfram í nýrri tækni og spreytt sig á spennandi verkefnum.