Líf í borgarholtsskóla

09/11/2023 | Ritstjórn

Lýðræðisfundur nemenda

Lýðræðisfundur

Lýðræðisfundur

Lýðræðisfundur nemenda fór fram föstudaginn 3. nóvember. Á lýðræðisfundum gefst nemendum tækifæri til að viðra skoðanir sínar og rökræða þær við samnemendur.
Fundurinn fór fram í matsalnum en nemendur skiptust á borð og á hverju borði var kennari sem var hópstjóri en umræðan sjálf var alfarið í höndum nemenda.

Umræðuefnin voru þrjú:

  • Námið (uppsetning náms, námsmat o.fl.)
  • Skólinn (húsgögn, aðstaða o.fl.)
  • Félaglíf (skólabragur, viðburðir o.fl.)

Eftir umræðurnar voru helstu niðurstöður hvers hóps kynntar. Meðal þeirra atriða sem nemendur töldu upp varðandi skólann var að nemendur vildu fá frítt kaffi, fleiri kósý staði í skólanum og fjölbreyttari og hollari mat í mötuneytið. Varðandi námið vildu nemendur til að mynda fá fleiri uppbrotstíma, þægilegri stóla og lengri pásur á milli tíma. Þegar kom að félagslífinu vildu nemendur helst fjölbreyttari klúbba, fleiri kósýkvöld, fleiri afslætti tengda nemendafélaginu og fá að gera eigin tillögur að skólapeysum.

Fundurinn tókst mjög vel en Karen Ösp Birgisdóttir stjórnaði honum af stakri prýði. Niðurstöðurnar verða kynntar stjórnendum og starfsfólki skólans sem munu vinna með þær áfram.