18/05/2026 | Ritstjórn
Lógó fyrir leikskóla

Verðlaunahafar frá vinstri til hægri: Josias, Elísabet, Sara og Grétar
Í vetur hafa nemendur á þriðja ári í grafískri miðlun unnið að hönnun merkis (lógós) fyrir leikskólann Laufskála við Laufrima í Grafarvogi. Efnt var til verðlaunasamkeppni þar sem starfsfólk og nemendur leikskólans völdu úr tillögum nemendanna í Borgó. Unnið var með einkunnarorð leikskólans sem eru gleði, virðing og opinn hugur. Börnin á elstu deildinni komu með óskir um hvernig þau vildu hafa merkið og stjórnendateymi og flestir nemendur leikskólans kusu þá tillögu sem þeim leist best á.
Nemendur í grafísku miðluninni sýndu mikinn metnað og hugmyndaauðgi við útfærslur á merki leikskólans og niðurstöðurnar eru glæsilegar eins og sést á meðfylgjandi myndum. Klara Kristjánsdóttir, aðstoðarleikstjórastjóri, veitti nemendum í þremur efstu sætunum skissubækur í verðlaun frá foreldrafélagi leikskólans en auk þess býður félagið öllum hópnum í keilu og pizzu í Keiluhöllinni.
Verðlaunasætin voru sem hér segir:
1. sæti: Grétar Páll Sigursteinsson
2. sæti: Sara Ósk Benediktsdóttir
3. sæti: Elísabet Lilja Gröndal
Sérstök heiðursverðlaun fékk síðan Josias Eduardo Mondragon Urena en hugmynd hans var valin sú besta af leikskólanemendum. Grétar Páll fær aðstoð kennara við grafíska miðlun, þeirra Kristínar Maríu og Kristínar Þóru, við að fullvinna hugmynd sína og verður merki hans notuð á allt efni leikskólans í framtíðinni. Þetta verkefni er sannarlega til fyrirmyndar og er góður vitnisburður um hvað samstarf samstarf skólans við fyrirtæki og stofnanir í nærumhverfinu getur verið gjöfult.

Hópurinn sem tók þátt ásamt Klöru aðstoðarleikskólastjóra og Kristínu Maríu, kennaranum sínum

