Líf í borgarholtsskóla

02/10/2026 | Ritstjórn

Ljúfir tónar í Grafarvogskirkju

Kórarnir allir saman komnir í kirkjunni

Kórarnir allir saman komnir í kirkjunni

Í gær fylltu ljúfir tónar Grafarvogskirkju en þar voru á ferð kór skólans ásamt gestum frá framhaldsskólum í Lichtenstein og Nordhorn í Þýskalandi. Mikil ánægja var með flutning kóranna sem komu fram saman og hver fyrir sig. Dagskráin var alþjóðleg og sungið var á þremur tungumálum: íslensku, sænsku og retórómönsku en það er eitt af opinberum tungumálum í Sviss.

Nemendur í kór Borgarholtsskóla hafa undanfarið unnið með kórum frá framhaldsskólunum Liechtensteinisches Gymnasium í Vaduz og Nordhorn Gymnasium í Þýskalandi. Samstarfið er hluti af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins sem Borgarholtsskóli er mjög virkur þátttakandi í.

Stjórnendur kóranna eru Guðbjörg Hilmarsdóttir frá Borgarholtsskóla, Heike Späthe og Fabian Gedicke frá Nordhorn  og Gregor Vogt, Nina Thüringer-Schiestl og Rest Tuor frá Liechtenstein.

Gestir voru margir og áttu vart orð til að lýsa hrifningu sinni og getur skólinn sannarlega verið stoltur af kórnum sínum.