Líf í borgarholtsskóla

22/06/2026 | Ritstjórn

Innritun lokið

Líf og fjör verður í skólanum á næstu önn sem endranær

Líf og fjör verður í skólanum á næstu önn sem endranær

Nú er úrvinnslu umsókna um nám við skólann á komandi haustönn lokið. Aðsókn var mikil og var því miður ekki hægt að taka inn alla þá sem vilja stunda hér nám.

Alls voru samþykktar 238 umsóknir nýnema sem útskrifuðust úr grunnskóla nú í vor. Umsóknir eldri nemenda voru einnig fjölmargar og fengu 204 umsækjendur inni í skólanum fyrir haustönnina. Það er því ljóst að líf og fjör verður í Borgó í haust þar sem gert er ráð fyrir að alls 1414 nemendur verði við nám við skólann á haustönn.

Um leið og umsækjendum er þakkað fyrir að velja Borgó óskum við þeim og öðrum nemendum og velunnurum skólans gleðilegs sumars. Nýnemar fæddir 2010 verða boðnir velkomnir á sérstökum nýnemadegi 18. september og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu 19. september.

Við hlökkum til að hitta ykkur öll hress og endurnærð eftir sumarfrí!