Líf í borgarholtsskóla

08/10/2026 | Ritstjórn

Hamagangur í heilsuviku

Mikill hamagangur var í róðrarkeppninni á miðvikudeginum

Mikill hamagangur var í róðrarkeppninni á miðvikudeginum

Í yfirstandandi viku hefur sannkölluð heilsuefling átt sér stað í skólanum. Heilsuvikan er haldin í tengslum við evrópsku íþróttavikuna (European Week of Sport) sem er árlegt átak sem fer fram í yfir 40 Evrópulöndum undir kjörorðinu #BeActive. Átakið er styrkt af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins.

Margt hefur verið gert til að efla andlega-, líkamlega- og félagslega heilsu nemenda í vikunni. Á hverjum morgni var boðið upp á heilsusamlegt snarl; ávexti, grænmeti og lýsisperlur. Í hádeginu var boðið upp á ýmsar líkamlegar áskoranir fyrir þau sem vildu reyna aukalega á sig og sanna kraft sinn og þor.

Á mánudaginn var haldið stigahlaup. Þar kepptust nemendur við að hlaupa frá 1. hæð upp á 3. hæð í bóknámshluta hússins á sem skemmstum tíma. Sigurvegarinn, Ewald Mateo, náði sögulegum árangri en hann stökk upp hæðirnar þrjár á einungis 6,75 sekúndum. Hröðust stúlkna var Joyceline Banaya á tímanum 8,18 sekúndum sem er virkilega góður tími.

Sippkeppni var á dagskrá á þriðjudaginn og var mikið kapp hjá þátttakendum að ná sem flestum hoppum á einni mínútu. Sigurvegarinn, Hilmar, náði að sippa 195 sinnum og Sigyn var með bestan árangur stúlkna eða 160 skipti. Miðvikudagsþrautin fólst í róðrarkeppni þar sem nemendur kepptu um hver væri fljótastur að róa 250 metra. Þar stóð Grímur uppi sem sigurvegari en hann reri vegalengdina á 42 sekúndum. Sigurvegari í kvennaflokki var Karen á 56 sekúndum. Þetta er glæsilegur árangur hjá þeim öllum.

Verðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin í kvenna- og karlaflokki alla dagana. Velunnarar skólans gáfu verðlaunin en það voru fyrirtækin Sportvörur, Margt smátt, Fjallakofinn, Lýsi, Hagkaup, GG sport, Klifurhúsið, Reykjabúið, Hreysti, Craft-verslun og Skopp. Þessum aðilum eru færðar innilegar þakkir fyrir stuðninginn.

Dagskráin náði svo hápunkti í dag, fimmtudag, en þá var nemendum gefinn kostur á að skrá sig í margvíslega heilsutengda atburði og kennsla felld niður í þriðju og fjórðu kennslustund. Nemendur gátu valið um að fara í gönguferð um nágrennið, skák, hláturjóga, keilu, fimleika, badminton, ræktina, handbolta, sirkus, hot fit, jóga og slökun, skauta, pílu, zumba, ólympískar lyftingar eða spila fótbolta. Auk þess var nemendum boðið upp á að horfa á bíómyndina True Spirit sem fjallar um áströlsku siglingakonuna Jessicu Watson sem reyndi, fyrst allra, að sigla ein og án aðstoðar í kringum höttinn aðeins 16 ára gömul árið 2009. Myndin er gott dæmi um það hvernig líkamleg hreysti og andlegt heilbrigði geta sigrað náttúruöflin. Í lokin var svo slegið upp diskóteki í matsalnum og lék plötusnúður undir dúndrandi dansi nemenda sem greinilega áttu næga orku inni.

Heilsuteymi skólans sá um framkvæmd þessarar viðburðaríku viku og á skilið hrós fyrir. Á morgun lýkur dagskránni með því að tekið verður á móti nemendum með heilsusamlegu snarli eins og aðra daga vikunnar.