20/04/2026 | Ritstjórn
Glæsileg gjöf

Kennararnir Ingvi og Haraldur ásamt Ingu sviðstjóra og Ellert deildarstjóra glaðhlakkaleg með gjöfina
Enn streyma til okkar gjafir frá velunnurum skólans. Í þetta skiptið var það vélsmiðjan Héðinn sem færði málm- og véltæknibrautum skólans glænýtt suðuborð að gjöf og ekki nóg með það heldur gerðu þau sér ferð upp í skóla til að afhenda gjöfina. Borðið er af allra bestu gerð, Siegmund, og mun breyta miklu í kennslu á málm- og véltæknibrautum.
Það voru kennararnir Haraldur Harðarson og Ingvi Pétursson sem áttu milligöngu um þessa glæsilegu gjöf og eru þeim færðar kærar þakkir ásamt starfsfólki vélsmiðjunnar Héðins fyrir rausnarskapinn.

Suðuborðið komið í hús og tilbúið til samsetningar

Ingvi og Haraldur una sér vel við borðið góða

