Líf í borgarholtsskóla

11/02/2026 | Ritstjórn

Glæsiball ársins

Nemendur prúðbúnir sem kvikmyndastjörnur

Nemendur prúðbúnir sem kvikmyndastjörnur

Prúðbúnir nemendur fylltu matsal skólans fimmtudagskvöldið 5. febrúar en þá var árshátíð þeirra haldin eða svo kallað glæsiball. Glæsiballið á sér langa sögu og er hápunktur félagslífsins í skólanum. Boðið var upp á dýrindis kalkúnaveislu og súkkulaðimús í eftirrétt og að vanda þjónaði starfsfólk til borðs. Þema kvöldsins var Rauði dregillinn og svo vel tókst til með skreytingar á salnum að hann var óþekkjanlegur.

Veislustjórar voru þeir Aron Mola og Arnar Þór Ólafsson.  Skemmtiatriði voru í höndum nemenda og kennara en félags- og forvarnarteymi skólans flutti hvatningarsöng sem féll vel í kramið. Hæfileikakeppnin Borgó got Talent fór fram þar sem félagarnir Kiddi og Styrmir urðu hlutskarpastir. Tveir efstu keppendurnir í Borgóvisjón, þær Vigdís Bára og Agnes Lind, fluttu saman hugljúft lag eftir Laufeyju Lin. Myndband frá BARA nefndinni var frumflutt og fyrrum nemandi skólans, Sylvía Þórðardóttir, söng nokkur lög og lék á gítar.  Í lokin fylltist gólfið svo af dansþyrstum gestum.

Kvöldið tókst í alla staði mjög vel og var mikið fjör hjá nemendum sem voru til fyrirmyndar í alla staði.