Líf í borgarholtsskóla

09/05/2025 | Ritstjórn

Gjöf frá Danfoss

Magnús Þór Guðmundsson kennari í pípulögnum með gjafirnar

Magnús Þór Guðmundsson kennari í pípulögnum með gjafirnar

Danfoss á Íslandi kom færandi hendi fyrir skömmu þegar fyrirtækið gaf pípulagningadeild skólans átta þrýstijafnara og átta slaufuloka með öllu tilheyrandi.

Fyrir skömmu óskuðu kennarar við pípulagningadeildina eftir því að fá notaðan búnað frá pípurum. Danfoss á Íslandi fékk veður af þessari umleitan og ákvað að gefa skólanum umræddan búnað. Deildin hefur frá stofnun notið góðs stuðnings birgja sem tengjast greininni og er því vel búin tækjum og búnaði sem jafnast á við það sem notað er í pípulögnum í dag.

Borgarholtsskóli færir Danfoss á Íslandi kærar þakkir fyrir höfðinglega gjöf.