Líf í borgarholtsskóla

06/05/2026 | Ritstjórn

Gjafmildi sem gagn er að

Tengistykki frá General Fittings (mynd af heimasíðu fyrirtækisins)

Tengistykki frá General Fittings (mynd af heimasíðu fyrirtækisins)

Á dögunum færði Húsasmiðjan pípulagnadeild skólans góðar gjafir. Deildinni voru færðar efnisgjafir, bæði álpes og pexrör ásamt tengistykkjum frá General Fittings á Ítalíu. Þetta efni gefur pípulagnadeildinni færi á að lækka efniskostnað í ákveðnum áföngum.

Fyrir utan þessar efnisgjafir færði Húsasmiðjan pípulagnadeildinni verðlaun og gjafakort til að afhenda útskriftarnemum á brautskráningadegi 23. maí næstkomandi.

Það er mikil búbót fyrir skólann okkar að hafa svona frábæra bakhjarla sem styðja svona vel við okkur og ekki er síðra að vera með frábært starfsfólk pípulagnadeildarinnar sem er duglegt að sækjast eftir styrkjum og gera brautina enn betri.