27/03/2026 | Ritstjórn
Gagnleg gjöf frá TM

Krakkarnir kátir með klessubílinn
Á dögunum færði tryggingafélagið TM sérnámsbraut skólans tjónaðan bíl að gjöf. „Nemendur á brautinni fá að vinna í bílnum frá grunni, fara undir hann, skoða púströr og ljósabúnað og gera við skemmdir. Lærdómurinn felst ekki bara í verkinu heldur líka í mistökunum, skrúfur eyðilagðar, festingar brotnar og er það allt hluti af ferlinu,“ eins og segir í frétt frá félaginu.
Slíkar gjafir eru að verða árlegur siður hjá TM og færir skólinn félaginu miklar þakkir fyrir rausnarsemina og metnaðinn til að gefa nemendum tækifæri til að læra og æfa sig á áþreifanlegum verkefnum sem koma þeim að gagni út í lífið.

Það er gaman að gera við

Þetta þarf að kunna

