09/05/2025 | Ritstjórn
Dimmison vor 2025

Hópurinn tilbúinn í ævintýri dagsins
Tilvonandi útskriftarnemar vorið 2025 dimmiteruðu föstudaginn 9. maí.
Nemendum var boðið upp á morgunmat í matstofu starfsfólks ásamt starfsfólki. Að því loknu færðu nemendur nokkrum kennurum kveðjugjafir að skilnaði. Ferðinni var svo heitið í miðbæ Reykjavíkur þar sem nemendur fara í ratleik og önnur ævintýri. Nemendur voru í fjölbreyttum búningum að vanda og gleðin var alltumlykjandi.
Það er alltaf ljúfsárt að kveðja útskriftarnemendur en þessir nemendur eiga framtíðina fyrir sér sama hvað þau taka sér fyrir hendur. Þeim er þakkað kærlega fyrir að augða okkar skólasamfélag síðustu ár.
Myndagallerí

Litríkir krakkar úr kvikmyndagerð

Nemendur í bóknámi færðu kennurum í bóknámi og í íþróttaakademíu súkkulaðiköku

Jón Finnur og Unnur fengu sérstaka viðurkenningu frá þessum nemendum

Kennarar í grafískri hönnun fengu bolla og bækur frá sínum nemendum

Nemendur í kvikmyndagerð færðu sínum kennurum stuttermabol með mynd af hópnum

Hallur Hrafn var krýndur sem nýr formaður NFBHS þar sem Dagmar útskrifast í vor

Kynjaverur í matsalnum

80's gallarnir

Drekarnir

Nemendur fá sér morgunmat

Fangarnir voru sumir með grímu af Bandaríkjaforseta

Ísak og Snorri færðu Guðnýju þennan dýrgrip

Þessir nemendur voru klædd sem persónur úr Mario Bros

Hópur af leðurblökumönnum