21/10/2026 | Ritstjórn
Arkitektar komu færandi hendi

Arkitektar húsnæðis Borgarholtsskóla ásamt eiginkonum og hluta stjórnenda skólans
Arkitektar skólahúss Borgarholtsskóla, þeir Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björnsson, komu heldur betur færandi hendi í heimsókn í dag. Höfðu þeir meðferðis líkan af skólanum sem gert var þegar þeir tóku þátt í samkeppni um hönnun skólahússins fyrir rúmum 32 árum og færðu skólanum að gjöf. Með þeim í för voru eiginkonur þeirra, þær Anna Jóhanna Alfreðsdóttir og Svanhildur Sigurðardóttir.
Sögðu þeir Finnur og Hilmar skólastjórnendum ýmsar skemmtilegar sögur af hönnunarferlinu og þátttökunni í samkeppninni. Meðal þess sem þeir töluðu um var að húsið væri hannað í samræmi við umhverfissjónarmið og m.a. tekið mið af því að sem mest af byggingarefnum væru endurvinnanleg.
Var heimsóknin afar skemmtileg en tilefni gjafarinnar var 30 ára afmæli skólans sem haldið er hátíðlegt á skólaárinu. Eru þeim félögum færðar innilegar þakkir fyrir höfðinglega gjöf. Líkaninu verður fundinn staður við hæfi hér í byggingunni og mun það eflaust gleðja gesti og gangandi um ókomin ár.

Líkanið, horft úr suðri

Hér er horft úr norðri

