14/04/2026 | Ritstjórn
Áhugi á opnu húsi

Áhuginn leynir sér ekki
Mikið var um að vera á opnu húsi í skólanum í dag, 14. apríl. Fjöldi áhugasamra nemenda úr grunnskóla, foreldrar þeirra og aðrir forvitnir gestir fylltu húsnæðið og kynntu sér fjölbreytt nám við skólann. Þar var hægt að skoða tæki og tól sem nýtt eru við kennslu í verknámi og listnámi, fræðast um það sem er í boði í bóknámi og íþróttaakademíu og nemendur í leiklist fluttu skemmtiatriði svo örfá dæmi séu nefnd.
Stór hópur nemenda tók þátt í kynningunni og aðdáun vakti hvað krakkarnir voru skeleggir í kynningum og leiðsögn um skólann. Stoltið leyndi sér ekki og er næsta víst að margir gestir munu kjósa að blómstra í Borgó næsta vetur.

Strákarnir á kvikmyndabrautinni með græjurnar sínar

Margt spennandi er hægt að læra í verknáminu

Þessir ungu menn sýndu hvernig á að gera við bílinn sinn

Magnús Hlynur kynnir raungreinanámið við skólann

Stundum þarf bara að banka aðeins í brettið

Kórinn flutti undurfagra tónlist

Hljómsveitin djammaði af hjartans lyst

Stoltir nemendur í verknámi kynna skólann sinn

