Líf í borgarholtsskóla

11/06/2025 | Ritstjórn

Afreksnemandi í frönsku

Eva Leplat Sigursson, Yaliana Valeska Sanchez Suarez og Patrick Le Ménès

Eva Leplat Sigursson, Yaliana Valeska Sanchez Suarez og Patrick Le Ménès

Þriðjudaginn 10. júní bauð Patrick Le Ménès, sendiráðunautur hjá Sendiráði Frakklands á Íslandi, til móttöku til heiðurs bestu útskiftanemendum í frönsku skólaárið 2024 – 2025. Móttakan var haldin í Alliance Française í Reykjavík.

Yaliana Valeska Sanchez Suarez var boðið í mótttökuna fyrir hönd útskriftarnemenda Borgó. Eva Leplat Sigurðsson kenndi Yaliana frönsku í Borgarholtsskóla og fékk hún hreinar 10 í öllum þeim frönskuáföngum sem hún tók.

Nemendur fengu verðlaun og að því loknu var boðið upp á léttar veitingar.

Yaliana Valeska Sanchez Suarez fær hamingjuóskir með framúrskarandi árangur.