22/06/2026 | Ritstjórn
Aðstoðarskólameistari ráðinn

Anton Már Gylfason ráðinn aðstoðarskólameistari
Anton Már Gylfason hefur verið ráðinn aðstoðarskólameistari við skólann. Anton Már hóf kennslu við skólann árið 2001 og kenndi þá stærðfræði, heimspeki og fleira. Anton var kennslustjóri bóknámsbrauta 2012-2017 og verkefnastjóri mætingamála 2009-2017. Hann hefur verið áfangastjóri skólans frá árinu 2017 og aðstoðarskólameistari í afleysingum 2021-2022, auk þess að sinna fjölmörgum öðrum verkefnum, s.s. prófstjórn, verkefnastjórn við innleiðingu nýrra framhaldsskólalaga, ritstjórn vefs skólans og ritstjórn skólanámskrár.
Það er mikil gæfa fyrir skólann, og ekki síst Ástu Laufeyju skólameistara, að fá svo traustan mann með mikla reynslu í þessa stöðu en Anton Már verður hægri hönd og staðgengill hennar næstu árin.

